is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13342

Titill: 
  • Mengandi myndugleiki og óhlýðni
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Umræða um femínisma og femíníska baráttu virðist vekja upp sterkar tilfinningar í hugum margra. Í erindinu er fjallað um félagslega mótun kvenleikans og hvernig hann birtist með ólíkum hætti í ólíkum aðstæðum. Hugtökin styðjandi og mengandi kvenleiki, systurhugtök ráðandi karlmennsku verða greind í því sambandi. Mengandi kvenleiki er andstæða styðjandi kvenleika. Mengandi kvenleiki er greindur í femínísku baráttustarfi og skoðað hvernig bæði hugtökin, mengandi og styðjandi, tengjast áru kynjajafnréttis (Gyða Margrét Pétursdóttir, 2009) með ólíkum hætti. Greiningin byggir á þema- og orðræðugreiningu á skrifum netverja í kjölfar stofnunar Femínistafélags Íslands árið 2003. Í erindinu er spurt: Með hvaða hætti stuðlar styðjandi kvenleiki að undirskipun kvenna? Er rými fyrir annars konar kvenleika og hvers er hann megnugur? Hvernig er hægt að stuðla að raunverulegu kynjajafnrétti í stað áru kynjajafnréttis? Niðurstöður eru þær að mengandi kvenleiki spillir sambandi ráðandi karlmennsku og styðjandi kvenleika og er litin hornauga. Styðjandi kvenleiki er ein af forsendum þess að hægt er að dvelja innan áru kynjajafnréttis á meðan mengandi kvenleiki getur hugsanlega stuðlað að raunverulegu jafnrétti til lengri tíma litið.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Stjórnmálafræðideild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13342


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gyda_Petursdottir_Mengandi myndugleiki og ohlydni.pdf489.73 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna