is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13346

Titill: 
  • Titill er á ensku Ramadan in Iceland. A spiritual and social process
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Grein mín og fyrirlestur munu fjalla um hvernig Ramadanmánuður, hin helgi föstumánuður múslíma er haldinn á Íslandi. Byggt er á vettvangsrannsókn og þátttökuaðferð meðal múslíma í tveimur íslömskum trúfélögum í Reykjavík og borið saman við samskonar helgihald annars staðar. Ramadan er níundi mánuður í íslömsku tímatali en í þeim mánuði hófst opinberun Kóransins þar sem erkiengillinn Gabríel miðlaði orðum Guðs til spámannsins Múhameðs.
    Orðið Ramadan þýðir glóandi hiti, sviðin jörð eða skortur og vísar í eðli eyðimerkurinnar. Ramadan stendur yfir frá því að mánasigð hins nýja tungls hins níunda mánaðar sést á himni og þar til samskonar sýn sést fjórum vikum
    síðar. Í þessum mánuði fasta múslímar frá dögun til sólseturs og stunda bænahald í meira mæli en annars og hlýða á allan Kóraninn. Félagsleg samskipti og fjölskyldutengsl aukast til muna og mikilvægi þess að láta gott af sér leiða og betrumbæta sjálfan sig sömuleiðis. Ég mun bera saman framkvæmd trúarathafna í hinum tveimur trúfélögum, en á þeim er ákveðinn munur og mun einnig líta til annarra landa til samanburðar. Ég mun gera grein fyrir hinum fjölbreytilegu þáttum sem tengjast þessum mánuði; andlegum, félagslegum og líkamlegum, en vitund og virkni hvað það varðar er í hávegum höfð.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Félags- og mannvísindadeild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13346


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristjan_Th_Sigurdsson_Ramadan in Iceland.pdf485.16 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna