is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13357

Titill: 
  • Samanburður á viðhorfum íslenskra og tékkneskra neytenda til gæðavottunarmerkinga
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Í greininni er fjallað um matvæli merkt með gæðavottun (quality labels). Markmiðið var að koma auga á og bera saman viðhorf neytenda til þeirra gæðavottana sem notaðar eru á íslenskum og tékkneskum matvörumarkaði. Í fyrri hluta greinarinnar eru gæðavottanir skilgreindar og einkenni þeirra útlistuð en í seinni hlutanum er greint frá niðurstöðum rannsóknar er tók mið af ofangreindum markmiðum. Gögnum var safnað með hentugleikaúrtaki og fengust 267 svör; 117 svör voru frá íslenskum þátttakendum en 150 frá tékkneskum þátttakendum. Niðurstöður sýna að marktækur munur er til staðar á milli viðhorfa neytenda í löndunum tveimur til eftirfarandi þátta: Upprunalands matvara, vitneskju um merkingar og áhuga á upplýsingum varðandi gæðavottun matvæla. Ennfremur var tölfræðilega marktækur munur á milli kynja er kom að matarinnkaupum í Tékklandi sem og áhuga kynjanna á gæðavottun.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Viðskiptafræðideild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13357


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
FridrikLarsen_ofl_Islenskir og tekkneskir neytendur.pdf749.07 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna