is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13359

Titill: 
  • Mælingar á árangri auglýsingaherferða
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Fyrirtæki alls staðar í heiminum verja háum fjárhæðum í auglýsingaherferðir á ári hverju. Þrátt fyrir þá staðreynd hafa fyrri rannsóknir sýnt að fæst fyrirtæki mæla árangur þeirra. En skyldu íslenskir auglýsendur haga sér eins og auglýsendur í erlendu rannsóknunum? Til að skera úr um það ákváðu höfundar þessarar greinar að gera rannsókn meðal íslenskra auglýsenda. Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um hvort og þá hvernig auglýsendur á Íslandi mæla árangur auglýsingaherferða sinna. Lagt var upp með tvær rannsóknarspurningar. Til að svara þeim var gerð megindleg rannsókn í formi spurningakönnunar sem send var rafrænt á markaðsstjóra 100 stærstu fyrirtækja landsins miðað við starfsmannafjölda. Alls tóku 26 fyrirtæki þátt í rannsókninni og skiptust nokkurn vegin til helminga í stór og meðalstór fyrirtæki. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að tæpur helmingur fyrirtækjanna mælir árangurinn oft eða alltaf. Oftast eru mældar breytingar í sölu og markaðshlutdeild en einnig mæla fyrirtækin frekar oft vörumerkjavitund og ímynd markhóps á vörumerkinu.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Viðskiptafræðideild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13359


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HallaBjork_FridrikEysteins_Maelingar a arangri auglysingaherferda.pdf1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna