is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13383

Titill: 
  • Félag kvenna í atvinnurekstri og veiting viðurkenningar til Já
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Stuðla árlegar viðurkenningar Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) til kvenna í atvinnulífinu að auknu kynjafnrétti í íslensku samfélagi, eða viðhalda þær misrétti? Rannsóknin beinist að því að svara þessu og skoða um leið tilganginn með FKA og viðurkenningum félagsins. Í ár var viðurkenning FKA til fyrirtækisins Já gagnrýnd á þeim forsendum að fyrirtækið hefði ekki stuðlað að jafnrétti í verki, heldur þvert á móti. Gagnrýnin byggðist einkum á því að vinnustöð á Akureyri hefði verið lögð niður og 19 konur misst vinnuna. Þá voru viðskipti Já við Egil „Gillz“ Einarsson gagnrýnd með þeim rökum að hann stæði fyrir allt annað en jafnrétti kynja. Opinber umræða sem snýr að þessari gagnrýni er greind, bæði fréttir af málinu og umræða af hálfu FKA vegna gagnrýninnar.
    Við greiningu gagna er stuðst við kenningar um hugtakið „styðjandi kvenleiki“, en kjarninn í styðjandi kvenleika er sá að að viðhalda ráðandi karlmennsku og þar með samfélagslegum völdum karla.
    Helstu niðurstöður eru þær að afstaða FKA sem fram kom í umræðum um veitingu viðurkenningarinnar sem gagnrýnd var sé í raun opin gildra styðjandi kvenleika. Hún getur leitt til þess að viðurkenningin sé veitt fyrirtæki sem ýtir undir ráðandi karlmennsku og gengur gegn jafnrétti kynja í rekstri sínum að
    öðru leyti en því að hafa konur í stjórnunarstöðum

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Stjórnmálafræðideild
Samþykkt: 
  • 29.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13383


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AnnaSverris_ElvaSverris_Veiting vidurkenninga til Ja.pdf532.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna