Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13411
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. gráðu í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands. Hluti verkefnisins er hönnun og uppsetning á tómstundarherbergi í anda Snoezelen inni á heimili mikið fatlaðs fólks. Öllum er það nauðsynlegt að eiga tómstundir í frítíma sínum en það eykur lífsgæðin, þroskar, veitir hugaró og gefur lífinu gildi. Snoezelen á rætur sína að rekja til Hollands og hefur reynst vel í vinnu með mikið fötluðum einstaklingum með litla boðskiptafærni. Engar kröfur eru gerðar til einstaklingsins og ræður hann för. Snoezelen er hugmyndafræði sem gengur út á að umhverfið sé friðsælt og öruggt. Í ritgerð þessari eru einnig fjallað um hugtökin virkni, lífsgæði, valdefling og boðskipti sem skipta máli til að tómstundir efli þroska og lífsgæði þessara einstaklinga eins og annarra. Í enda ritgerðar eru upplýsingar sem ég útbjó fyrir starfsfólk heimilisins ásamt myndum á meðan á sköpuninni stóð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Fanný Björk.pdf | 594.68 kB | Lokaður til...30.09.2132 | Heildartexti |