Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13412
Verkefnið Leikum að uppbyggingu sjálfsaga – Notkun leikrænna aðferða við kennslu Uppeldis til ábyrgðar er lokaverkefni mitt til B.Ed. gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Útbúið hefur verið kennsluefni sem er ætlað til þess að leiða saman aðferðir leiklistar og Uppeldis til ábyrgðar í kennslu. Kennsluefnið samanstendur af fjölbreyttum leikrænum æfingum og þremur heildstæðum leikferlum sem henta nemendum á mismunandi aldri. Í greinagerð sem fylgir kennsluefninu er hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar kynnt og rök færð fyrir gagnsemi notkunar leikrænna aðferða við kennslu þess. Einnig er bent á tengsl Uppeldis til ábyrgðar og notkun leikrænna aðferða við nýja Aðalnámskrá grunnskóla.
Greinagerðinni er ætlað að útskýra tilgang kennsluefnisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Leikum að uppbyggingu sjálfsaga Kennsluefni.pdf | 375.67 kB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna | |
Leikum að uppbyggingu sjálfsaga Greinagerð.pdf | 300.2 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |