is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Lokaverkefni í félagsvísindadeild (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13477

Titill: 
  • Hvaða ástæður lágu að baki þess að samkomulag Írana, Brasilíumanna og Tyrkja um kjarnorkuáætlun Írana tók ekki gildi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari lokaritgerð er skoðað hvaða mögulegu skýringar geta legið að baki þeirri ákvörðun Vínarhópsins að samþykkja ekki samkomulag sem náðist hafði milli Brasilíumanna, Tyrkja og Írana í kjarnorkudeilunni við Írana út frá kenningum raunhyggjunnar og frjálslyndrar stofnanahyggju. Til þess að svara spurningunni er fjallað um kenningarnar tvær, sögu kjarnorkuáætlunar Írana, tilraunum alþjóðasamfélagsins og hvaða áhrif kjarnorkuvopn í höndum íranskra stjórnvalda gætu haft. Einnig var samkomulag þriggja fyrrnefndra landa skoðaður ásamt viðbrögðum málsaðila.
    Helstu niðurstöður eru þær að samningnum var hafnað því hvergi kom fram í samkomulagi Brasilíumanna, Tyrkja og Írana að Íranir myndu láta af auðgun úrans, þvert á ályktanir Öryggisráðs Sameinðu þjóðanna. Einnig hafði tekist að sannfæra bæði kínversk og rússnesk yfirvöld að samþykkja refsiaðgerðir sem þau höfðu verið mótfallin en það tókst á sama tíma og samningaviðræðurnar stóðu yfir í Íran. Vakti það mikla athygli vegna þess stuðnings sem bæði Brasilíumenn og Tyrkir töldu sig njóta.

Samþykkt: 
  • 27.11.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13477


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
SigurdurOrn-BA-FINAL.pdf635.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna