is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1351

Titill: 
  • Áætlanagerð : veitingastaðurinn Viðeyjarstofa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með þessu verkefni er að gera rekstraráætlun fyrir
    veitingastaðinn Viðeyjarstofa í Viðey. Rekstraraðilar Viðeyjarstofu
    er fyrirtækið Goða-Torg ehf. sem jafnframt er með rekstu á
    Viðeyjarnausti sem er grillskáli og skólahúsi sem var notað sem slíkt
    þegar byggð var í Viðey á 19. öld. Eigendur Viðeyjarstofu er
    Reykjavíkurborg en árið 1988 var miklum endurbótum lokið á
    kirkjunni og Viðeyjarstofu og fékk húsið nýtt hlutverk sem
    veitingastaður. Viðeyjarstofa býr að viðburðaríkri sögu og menningu
    en þar bjó margur merkur athafnamaðurinn öldum áður.
    Þær aðgerðir sem þurfti að fara í gegnum til að ná markmiðinu voru
    ýmis konar. Til að byrja með var farið í að skoða virðiskeðjuna m.t.t.
    þess að auka virði hennar með áætlanagerð. Skoðuð voru einkenni
    þjónustufyrirtækja í samanburði við framleiðslufyrirtæki til að átt sig
    betur á muninum á starfsemi fyrirtækja sem bjóða uppá þjónustu sem
    afurð. Skipulag og samskipti Viðeyjarstofu voru skoðuð og sett í
    samhengi við viðskiptavini, starfsmenn og hið opinbera. Til að
    undirbúa áætlunagerðina enn betur var farið í stefnumótunarvinnu
    með SVÓT greiningu þar sem farið var í gegnum styrkleika,
    veikleika, ógnanir og tækifæri Viðeyjarstofu. Eftir að grunnvinnunni
    lauk lá fyrir betri þekking á rekstarumhverfi Viðeyjarstofu og í
    framhaldi að því var gerð kostnaðargreining fyrir árið 2003 sem
    sýndi hallarekstur það árið.
    Markmiðið var að snúa þeirri stöðu við og skila hagnaði árið 2004.
    Rekstraráætlun fyrir árið 2004 var útbúin, sem var tilgangurinn með
    þeirri undirbúningsvinnu sem áður hafði farið fram. Niðurstaðan varð
    sú, að hægt er að skila hagnaði af rekstrinum með ýmsum aðgerðum,
    aðhaldi og eftirliti.
    Lykilorð
    • Viðeyjarstofa
    • Veitingastaður
    • Viðeyjarferja
    • Viðey
    • Áætlanagerð

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri frá og með maí 2009
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1351


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Viðeyjarstofa_heild.pdf265.7 kBTakmarkaðurViðeyjarstofa - heildPDF
Viðeyjarstofa_e.pdf74.83 kBOpinnViðeyjarstofa - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Viðeyjarstofa_h.pdf135.7 kBOpinnViðeyjarstofa - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Viðeyjarstofa_u.pdf101.61 kBOpinnViðeyjarstofa - útdrátturPDFSkoða/Opna
Viðeyjarstofa_viðaukar.pdf6.15 MBTakmarkaðurViðeyjarstofa - viðaukarPDF