Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1351
Markmiðið með þessu verkefni er að gera rekstraráætlun fyrir
veitingastaðinn Viðeyjarstofa í Viðey. Rekstraraðilar Viðeyjarstofu
er fyrirtækið Goða-Torg ehf. sem jafnframt er með rekstu á
Viðeyjarnausti sem er grillskáli og skólahúsi sem var notað sem slíkt
þegar byggð var í Viðey á 19. öld. Eigendur Viðeyjarstofu er
Reykjavíkurborg en árið 1988 var miklum endurbótum lokið á
kirkjunni og Viðeyjarstofu og fékk húsið nýtt hlutverk sem
veitingastaður. Viðeyjarstofa býr að viðburðaríkri sögu og menningu
en þar bjó margur merkur athafnamaðurinn öldum áður.
Þær aðgerðir sem þurfti að fara í gegnum til að ná markmiðinu voru
ýmis konar. Til að byrja með var farið í að skoða virðiskeðjuna m.t.t.
þess að auka virði hennar með áætlanagerð. Skoðuð voru einkenni
þjónustufyrirtækja í samanburði við framleiðslufyrirtæki til að átt sig
betur á muninum á starfsemi fyrirtækja sem bjóða uppá þjónustu sem
afurð. Skipulag og samskipti Viðeyjarstofu voru skoðuð og sett í
samhengi við viðskiptavini, starfsmenn og hið opinbera. Til að
undirbúa áætlunagerðina enn betur var farið í stefnumótunarvinnu
með SVÓT greiningu þar sem farið var í gegnum styrkleika,
veikleika, ógnanir og tækifæri Viðeyjarstofu. Eftir að grunnvinnunni
lauk lá fyrir betri þekking á rekstarumhverfi Viðeyjarstofu og í
framhaldi að því var gerð kostnaðargreining fyrir árið 2003 sem
sýndi hallarekstur það árið.
Markmiðið var að snúa þeirri stöðu við og skila hagnaði árið 2004.
Rekstraráætlun fyrir árið 2004 var útbúin, sem var tilgangurinn með
þeirri undirbúningsvinnu sem áður hafði farið fram. Niðurstaðan varð
sú, að hægt er að skila hagnaði af rekstrinum með ýmsum aðgerðum,
aðhaldi og eftirliti.
Lykilorð
• Viðeyjarstofa
• Veitingastaður
• Viðeyjarferja
• Viðey
• Áætlanagerð
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Viðeyjarstofa_heild.pdf | 265.7 kB | Takmarkaður | Viðeyjarstofa - heild | ||
Viðeyjarstofa_e.pdf | 74.83 kB | Opinn | Viðeyjarstofa - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Viðeyjarstofa_h.pdf | 135.7 kB | Opinn | Viðeyjarstofa - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Viðeyjarstofa_u.pdf | 101.61 kB | Opinn | Viðeyjarstofa - útdráttur | Skoða/Opna | |
Viðeyjarstofa_viðaukar.pdf | 6.15 MB | Takmarkaður | Viðeyjarstofa - viðaukar |