Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13531
Traust almennings á störfum stjórnvalda er mikilvægt. Vandaðar og skýrar málsmeðferðar og verklagsreglur eru til þess fallnar að auka réttaröryggi borgaranna í samskiptum við
stjórnvöld. Erfitt getur reynst að setja fastmótaðar reglur um alla starfsemi stjórnvalda og er
óhjákvæmilegt að stjórnvöld þurfi í störfum sínum að taka ákvarðanir um réttindi og skyldur
manna sem háðar eru mati. Slíkar ákvarðanir kallast matskenndar stjórnvaldsákvarðanir.
Aukin áhersla í stjórnsýslunni á jafnræðissjónarmið krefjast þess að við töku slíkra
ákvarðanna gæti stjórnvöld samræmis og jafnræðis.
Ráðningar í opinber störf eru stjórnvaldsákvarðanir. Skráðar og óskráðar reglur
stjórnsýsluréttarins gilda því um slíkar ákvarðanir. Veitingavaldshafi þarf einnig að líta til
laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, við ráðningu í störf hjá hinu
opinbera, sem og til þeirra laga og stjórnvaldsfyrirmæla er gilda um viðkomandi starf.
Hluti ráðningarferlisins er þó alltaf háður mati. Mikilvægt er því að stjórvöld hagi ferlinu
þannig að fyllsta jafnræðis sé gætt á meðal umsækjenda.
Í ritgerðinni verður ráðningarferli í störf hjá hinu opinbera skoðað. Með hliðsjón af
dómum Hæstaréttar og álitum umboðsmanns Alþingis verður reynt að varpa ljósi á vægi
jafnræðissjónarmiða við málsmeðferðina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
PerlaTorfadottir_BA_ritgerd.pdf | 370.81 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |