is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13554

Titill: 
  • Eru sjómenn virkir þátttakendur í umönnun og uppeldi barna sinna: Sjómenn og föðurhlutverkið
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast aukinn skilning og varpa ljósi á upplifun og reynslu sjómanna af föðurhlutverkinu og möguleika þeirra á að taka þátt í umönnun og uppeldi barna sinna á fyrsta æviskeiði þeirra. Skoðað var hverjar aðstæður og möguleikar sjómanna til að taka þátt í umönnun og uppeldi ungra barna væru, hvort og hvernig þeir taka þátt í meðgöngunni og hvort þeir séu viðstaddir fæðingu yngsta barns. Einnig var kannað hvernig sjómenn nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Spurningakönnun var lögð fyrir sjómenn sem starfa hjá Samherja á Akureyri. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sjómenn eru virkir þátttakendur í umönnun og uppeldi barna sinna, þegar frá er talin þátttaka í meðgöngunni. Þeir telja að sama skapi starf sitt hvorki hafa slæm né góð áhrif á þátttöku sína. Þættir líkt og aldur, menntun, hjúskaparstaða eða lengd sjóferða virðast hafa lítil áhrif á þátttöku sjómanna í umönnun og uppeldi barna sinna en einstaklingsbundnir þættir annars vegar og þættir sem ákvarðast af lögum hins vegar virðast hafa meiri áhrif. Í ljós kom að tekjur eru helsti kosturinn við sjómannsstarfið en fjarvera helsti gallinn.

Samþykkt: 
  • 20.12.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13554


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ma ritgerð - Sjómenn og föðurhlutverkið.pdf1.45 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna