Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13580
Markmiðið með verkefninu er að skrá og gera skjalasafn föður míns, Matthíasar Á. Mathiesen (f. 6. ágúst 1931, d. 9. nóvember 2011), aðgengilegt fyrir nánustu ættingja hans og afkomendur. Það er unnið samkvæmt leiðbeiningum og verklagi Þjóðskjalasafns Íslands. Safnið er rafrænt skráð samkvæmt kerfi Þjóðskjalasafns með það í huga að það verði síðar afhent til langtímavarðveislu. Æviferill Matthíasar er rakinn. Sagt er frá kynnum mínum af einkaskjalasöfnum og kynnt er staða einkaskjalasafna á Íslandi útfrá könnun Þjóðskjalasafns Íslands. Vísað er í leiðbeiningarit Þjóðskjalasafns Íslands. Lýst er vinnulagi við frágang einkaskjalasafnsins og farið yfir einstök atriði skráningarfærslu. Sagt er frá uppbyggingu skjalasafnsins, einstökum skjalaflokkum lýst og innihaldi skjala í hverjum flokki. Sjálf skjalaskráin fylgir í viðauka, bæði yfirlit skjalaflokka og einstakar færslur safnsins. Skráningarfærslur eru 270 talsins og fylla skjölin 28 skjalaöskjur. Elstu skjölin í safninu eru frá árinu 1835 og þau yngstu frá árinu 2010. Heiti skjalaflokkanna og undirflokka lýsa best innihaldi safnsins.
A. Bréfasafn
AA. Bernska, unglingsár og skólaganga
AB. Fjölskyldan og fullorðinsár
AC. Stjórnmál
AD. Tónverk
AE. Handrit og drög að ritum
AF. Ættfræði og ættartöl
B. Prentað efni
BA. Dagblöð og úrklippusöfn
BB. Hamar, blað sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
BC. Annað prentað efni
C. Hluti af bréfasafni Einars Þorgilssonar
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_ritgerd_HalldoraM.pdf | 1.28 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |