Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13582
Markmið þessarar rannsóknar var að meta þá breytingu sem átti sér stað hvað varðar öryggismenningu og öryggishneigð starfsmanna stórs framleiðslufyrirtækis í kjölfar innleiðingar aðferðafræðinnar öruggt atferli (e. Behaviour Based Safety). Ætlunin var að auka skilning á upplifun þeirra sem tóku þátt í innleiðingarferlinu og þannig einangra þau atriði sem virkuðu vel og þau sem síður skiluðu árangri. Kenningar um stofnanafrumkvöðla voru nýttar samhliða fræðilegri umfjöllun um öruggt atferli til að varpa ljósi á hvernig unnt sé að auka drifkraft og lögmæti þeirra breytinga sem aðferðafræðin stendur fyrir. Þá var fræðileg umfjöllun um stofnanakenningar nýtt til að stoppa upp í fræðilegt holrými sem einkennir aðferðafræðina um öruggt atferli en þær kenningar varpa ljósi á ástæður breytingatregðu. Tregða til breytinga er fyrirbæri sem aðferðafræði öruggs atferlis viðurkennir en skilgreinir ekki frekar.
Notast var við eigindlega tilviksrannsókn til að ná fram viðhorfum framlínustarfsmanna fyrirtækisins í garð þeirra breytinga sem kappkostað hefur verið að ná í gegn sem og upplifun þeirra á ferlinu.
Megin niðurstöður rannsóknarinnar sýna að nýliðun, ytri áhrifaþættir og viðhorfsbreyting innan fyrirtækisins hafi undirbúið skipulagsheildina fyrir breytingu og útbúið umhverfi sem var meðtækilegt fyrir nýjungum og leyfði í raun kvika breytingu á skipulagi heildarinnar.
Niðurstöðurnar sýna einnig að áhersla á innleiðingu ákveðinna öryggistóla hefur verið í ójafnvægi við fræðslu starfsmanna sem leiðir af sér aðskilnað milli tólanna og þess sem í raun er gert (e. decoupling). Niðurstöðurnar undirstrika þannig mikilvægi þekkingarmiðlunar samhliða notkun á öryggistólum. Niðurstöðurnar sýna að með því að nota skilvirka þekkingarmiðlun má markvisst byggja upp rökrænt lögmæti í garð breytinga og ýta þannig undir stofnanavæðingu aðferðafræðinnar um öruggt atferli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þekking er öryggi - Breytingar á öryggishneigð einstaklinga innan skipulagsheildar.pdf | 1.18 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |