Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13592
Í ritgerðinni er leitast við að greina beitingu stjórnvaldssektarákvæðis 37. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, vegna brota fyrirtækja og samtaka fyrirtækja gegn banni samkeppnislaga við ólögmætu samráði og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Stjórnvaldssektir þessar eru lagðar á með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og lúta endurskoðunar áfrýjunarnefndar samkeppnismála og dómstóla.
Hugtakið fyrirtæki í samkeppnislögum er skýrt sjálfstæðri skýringu og vísar til efnahagslegrar einingar en ekki lagalegrar. Í ritgerðinni er því lýst hvernig það getur leitt til þess að einn lögaðili verði undir vissum kringumstæðum látinn bera ábyrgð á háttsemi annars.
Megintilgangur með álagningu stjórnvaldssektanna er að stuðla að framkvæmd samkeppnislaga með því að hafa almenn- og sérstök varnaðaráhrif. Í ritgerðinni er skoðuð framkvæmd innlendra stjórnvalda og dómstóla við beitingu 37. gr. samkeppnislaga, svo og sektarákvarðanir í EES/ESB-samkeppnisrétti, og með því varpað ljósi á þá þætti sem litið er til við ákvörðun um fjárhæð sekta í einstökum málum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Margrét Helga.pdf | 990.26 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |