is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13650

Titill: 
  • Alþjóðlegar ættleiðingar og siðferðileg álitamál
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari heimildarritgerð verður fjallað um alþjóðlegar ættleiðingar og ástæður þess að börnum eru fundin heimili í öðru landi en þau fæðast í og hvaða skýringar liggja þar að baki. Einnig verður gerð grein fyrir siðferðilegum álitamálum sem tengjast alþjóðlegum ættleiðingum.
    Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að meginástæður fyrir alþjóðlegri ættleiðingu barna eru fjölþættar en þær helstu eru fátækt, ríkjandi óskir og viðhorf í upprunaríkjum um að eignast sveinbörn, ójöfnuður á milli uppruna- og viðtökuríkja og mismunun einstaklinga vegna kyns eða stöðu. Börn eru einnig gefin til ættleiðinga af kynforeldrum sem vilja tryggja börnum sínum möguleika á betri framtíð en þau sjá fram á að geta boðið þeim sjálf. Helstu siðferðilegu álitamál er tengjast alþjóðlegum ættleiðingum er að stór hluti þeirra barna sem eru alþjóðlega ættleidd eiga foreldra á lífi og hefur verið hafnað við fæðingu vegna kynferðis eða stöðu. Upp hafa komið mál þar sem viðskiptalegir hagsmunir virðast hafa verið látnir ráða för og ekki farið að lögum og alþjóðasamningum. Alþjóðlegar ættleiðingar hafa einnig verið bitbein á vettvangi alþjóðastjórnmála. Þau siðferðilegu álitamál sem upp hafa komið sýna fram á mikilvægi þess að vel og faglega sé staðið að alþjóðlegum ættleiðingum og að hagsmunir barna skulu hafðir í forgrunni.
    Lykilorð: Alþjóðlegar ættleiðingar, börn, siðferði, fátækt, mismunun, félagslegt réttlæti

Samþykkt: 
  • 9.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13650


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Althjodlegar_aettleidingar_og_sidferdileg_alitamal.pdf858.73 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna