is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1371

Titill: 
  • Þróun fiskneyslu : Akureyri og nágrenni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í líftækni við Háskólann á Akureyri. Rannsóknarspurningar sem leitað var svara við eru eftirfarandi:
    • Hversu mikil er fiskneysla fólks á Akureyri og í nágrenni bæjarfélagsins?
    • Hverjar eru ástæður þess að fiskur er hafður á borðum?
    • Er að aukast bilið milli kynslóða í neyslu fisks eins og eldri rannsóknir hafa sýnt?
    • Hver er þekking á heilnæmi fisks hjá hinum almenna neytenda?
    Verkefnið inniheldur jafnframt fræðilega umfjöllun um innihaldsefni og heilnæmi fisks ásamt umfjöllun um niðurstöður rannsókna sem sýna fram á heilnæmi hans. Fiskur er fæða sem sýnt hefur verið fram á að er mjög heilnæmur og að hann inniheldur m.a.ómega-3 fitusýrur sem eru góðar fyrir hjartað ásamt próteinum og peptíðum? sem einnig eru talin hafa jákvæð áhrif á heilsu manna. Fiskur hefur verið mikilvægur hluti þess matar sem á borð hefur verið lagður á íslenskum heimildum frá örófi alda og á hugsanlega þátt í háum meðalaldri Íslendinga. Nú er þó ljóst að eitt okkar einkennismerkja, að vera mikil fiskneysluþjóð, er nánast horfið á ótrúlega skömmum tíma. Miklar breytingar hafa orðið á lífsháttum á stuttum tíma sem fylgt hafa velmegunarsjúkdómar sem fjallað er um ásamt umfjöllun um möguleika fisks sem markfæði
    Þróun fiskneyslu er skoðuð með því að horfa um öxl á þróun fiskveiða og á niðurstöður um fiskneyslu úr neyslurannsóknum hérlendis. Til að varpa ljósi á þróun fiskneyslu úr fleiri áttum var upplýsinga aflað um fjölda fiskmáltíða og matreiðsluaðferðir í mötuneytum í grunnskólum Akureyrar sem ná ekki viðmiðum Lýðheilsustöðvar. Einnig er fjallað um tölur um framboð á fiski á mörkuðum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1371


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
throunfiskneyslu.pdf527.79 kBTakmarkaðurFiskneysla - heildPDF
throunfiskneyslu_e.pdf133.35 kBOpinnFiskneysla - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
throunfiskneyslu_h.pdf149.4 kBOpinnFiskneysla - heimildaskráPDFSkoða/Opna
throunfiskneyslu_u.pdf86.79 kBOpinnFiskneysla - útdrátturPDFSkoða/Opna
Þróun fiskneyslu_viðaukar1.pdf6.87 MBTakmarkaðurFiskneysla - viðaukarPDF