is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13795

Titill: 
  • Er hægt að vera óhlutdrægur í rannsóknum?
Útgáfa: 
  • Desember 2010
Útdráttur: 
  • Í greininni er fjallað um hlutlægni eða óhlutdrægni þess sem rannsakar. Sérstaklega er skoðuð rannsóknarnálgun sem kallast orðræðugreining. Því er haldið fram að í orðræðugreiningu skipti meginmáli að rannsakandinn sé meðvitaður um sín eigin áhrif á umfjöllunina um rannsóknarefnið. Fram hjá slíkum áhrifum sé áreiðanlega erfitt að komast en þá sé enn nauðsynlegra að draga þessi áhrif fram þannig að lesendur geti tekið þau með í reikninginn. Rannsókn fræðimanns á sjálfum sér verði þannig hluti af rannsókn hans á orðræðu eða texta. Leitað er skilgreininga á hugtakinu hlutlægni í rannsóknum og staða rannsakandans í orðræðugreiningu rædd. Höfundur tekur dæmi um álitamál þessu tengd úr doktorsrannsókn sinni á orðræðu um íslenska afreksmenn í íþróttum sem náð hafa langt á alþjóðavísu og skoðar hvernig atriði úr hans eigin bakgrunni og ævi gætu haft áhrif á umfjöllun hans um þá. Tilgangur greinarinnar er að hvetja alla rannsakendur til að huga að hlutlægni sinni og vekja til umhugsunar og umræðu um hvernig það verði best gert.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Samþykkt: 
  • 16.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13795


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Er hægt að vera óhlutdrægur í rannsóknum.pdf170.57 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna