is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1381

Titill: 
  • Sjókvíaeldi á þorski í Klettsvík
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hafa augum manna, í auknum mæli, beinst að þorskeldi sem vaxtarbroddi. Þorskveiðar hafa dregist saman á undanförnum árum og um leið skapast bil, milli framboðs og eftirspurnar, sem hugsanlega má brúa með eldi.
    Fyrirtækið Kví ehf. var stofnað á síðasta ári utan um uppbyggingu og rekstur á sjókvíaeldistöð í Klettsvík, í Vestmannaeyjum. Ætlunin er að byggja á eldi á þorski og hefur undurbúningur þess staðið í u.þ.b. eitt ár. Villtur þorskur verður veiddur og hann alin áfram. Samhliða því verða stundaðar tilraunir með eldi á seiðum með það fyrir augum að seiði geti staðið undir vaxandi hluta eldisins.
    Markaðir fyrir þorsk eru tiltölulega stórir og stöðugir og mikil reynsla er til af sölu þorskafurða. Stærstu markaðir fyrir heilan þorsk eru í Bretlandi og helstu markaðir fyrir fersk flök eru í Belgíu og Bandaríkjunum. Lítil reynsla er af sölu á eldisþorski og erfitt að segja til um hver staða hans gagnvart villtum fiski kemur til með að vera.
    Aðstæður til sjókvíaeldis eru að mörgu leyti ágætar í Klettsvík, sérstaklega m.t.t. sjávarhita. Slæmt veður og sjólag, að vetri til, gætu reyndar skapað vandamál en þeim ætti að vera hægt að mæta með réttum búnaði.
    Kví ehf. stendur ágætlega með þá sterku bakhjarla sem að fyrirtækinu standa. Fyrirtækið hefur yfir að ráða stórri og sterkbyggðri eldiskví auk annars búnaðar sem nauðsynlegur er.
    Arðsemi rekstrarins er ekki nægileg miðað við þær upphafsforsendur sem reiknað var með. Líklegt er að tap verði af rekstrinum í byrjun. Kvótaleiga, afurðaverð og fóðurkostnaður hafa langmest áhrif á rekstrarárangurinn.
    Lykilorð
    • Kví
    • Þorskeldi
    • Áframeldi
    • Klettsvík
    • Arðsemi

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1381


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
klettsvik.pdf527.83 kBLokaðurSjókvíaeldi - heildPDF
klettsvik_e.pdf19.74 kBOpinnSjókvíaeldi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
klettsvik_h.pdf33.4 kBOpinnSjókvíaeldi - heimildaskráPDFSkoða/Opna
klettsvik_u.pdf22.47 kBOpinnSjókvíaeldi - útdrátturPDFSkoða/Opna
Sjókvíaleldi_viðauki4.zip51.48 kBLokaðurSjókvíaeldi - excel reikniverkGNU ZIP