Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1382
Þessi ritgerð fjallar um ytra umhverfi og innra starf fiskvinnslufyrirtækisins Íslenskt Sjávarfang í Hrísey. Ritgerðin er byggð upp eftir ákveðinni aðferðafræði sem kennd er við hefðbundna stefnumótun.
Ytri greining leiddi í ljós ýmsar ógnanir. Þær helstu eru; minnkandi fiskneysla, lágt verð á staðkvæmdarvörum, minna framboð fisks á fiskmörkuðum og vaxandi samningsstyrkur stærstu kaupenda. Ýmis tækifæri eru fyrir hendi innan atvinnugreinarinar og má þar helst nefna aukna neyslu á forelduðum mat, vinnslu tengdri fiskeldi og sókn á nýja markaðshluta.
Íslenskt sjávarfang er að mörgu leyti illa statt fyrirtæki, t.a.m. er fjárhagsstaðan slæm og mikið hefur skort á skipulag í rekstri félagsins. Helstu styrkleikar ÍS liggja í mannauð og framleiðslutækjum. Aukið samstarf við Samherja á eflaust eftir að styrkja félagið til framtíðar.
Almennt séð þarf félagið að bæta skipulag og áætlanagerð, en auk þess þarf að standa betur að hráefnisinnkaupum og einfalda vinnsluna. Ýmsir valkostir eru í stöðunni fyrir Íslenskt sjávarfang, en ljóst er að fyrirtækið hefur enga burði til að standa í tilraunastarfsemi.
Útbúið var rekstrarlíkan sem byggir að mestu á rauntölum úr rekstri Íslensks sjávarfangs. Að því gefnu að forsendur líkansins séu réttar, ætti fyrirtækið að geta skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu.
Lykilorð:
• Stefnumótun
• Fiskvinnsla
• Íslenskt sjávarfang
• Innanlandsmarkaður
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Íslenskt sjávarfang_viðaukar0001.pdf | 2.98 MB | Opinn | Íslenskt sjávarfang - viðaukar | Skoða/Opna | |
islsjavarfang.pdf | 817.46 kB | Opinn | Íslenskt sjávarfang - heild | Skoða/Opna |