Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13854
Með síauknum fjölda ferðamanna og harðnandi samkeppni um ferðamanninn er
mikilvægt fyrir áfangastaði að vanda til verka við að kynna áfangastaðinn. Þetta BA verkefni
snýst um að útbúa markaðsáætlun í ferðamálum fyrir Hafnarfjörð. Verkefnið skiptist í tvo
hluta. Annars vegar er það greinargerð um áfangastaði, markaðssetningu og markaðsáætlanir
og hins vegar er það markaðsáætlunin sjálf.
Við gerð markaðsáætlunar er nauðsynlegt að greina mjög vel núverandi stöðu út frá
nokkrum sjónarhornum. Það þarf að skoða markaði, markhópinn og innra og ytra umhverfi.
Þá eru gerðar tillögur að aðgerðum ásamt því að leggja fram fjárhagsáætlun til þriggja ára og
aðgerðaráætlun til eins árs.
Megináherslan í markaðsáætluninni er að leggja aukna vigt á markaðssetningu á netinu
og virkja nýtingu samfélagsmiðla. Þá er einnig lagt til að Hafnarfjarðarbær auki framlög sín til
markaðsmála, fari í meira samstarf við Markaðsstofu Suðurnesja en endurskoði þátttöku sína í
Höfuðborgarstofu. Markmið markaðsáætlunarinnar eru til þriggja ára og eru að fjölga
erlendum ferðamönnum til Hafnarfjarðar og auka hlutfall þeirra af heildarfjölda ferðamanna
til Íslands í 20%. Eins er markmiðið að fjölga meðalgistinóttum úr 3,1 í 3,6 nætur og að
lokum er það að fjölga skipulögðum ferðum skemmtiferðaskipa til bæjarins.
With the increasing number of tourists and a growing competition for the tourist it is
important for destinations to promote itself in a very effective way. This BA project deals
with how to make a marketing plan for tourism in Hafnarfjörður and it is devided in two parts.
On the one hand is an exposition about destinations, marketing and marketing plans and on
the other hand is the marketing plan itself.
When making a marketing plan it is necessary to analyse the current situation in tourism
from a couple of different viewpoints. It is necessary to look at markets, the target market and
internal and exterior environment. Furthermore, some recommendations for actions are made.
Included in this assignment is also a three year budget and a one year action plan.
The main focus in the marketing plan is to emphasize marketing on the internet and a
more active use of social media. It is also recommended that Hafnarfjörður increases the
budget for marketing and increases the collaboration with Markaðsstofu Suðurnesja but
rethinks its involvement in Höfuðborgarstofa. The marketing plan is for three years and its
objective is to increase the number of foreign tourists to Hafnarfjörður. The goal is also to
increase the percentage of tourists that come to Hafnarfjörður, up to 20% of all tourists to
Iceland. At the end of three years the average nights each tourist stays in Hafnarfjörður should
have increased from 3,1 to 3,6 nights and finally the goal is also to increase the arrival of
cruise ships.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Markaðsáætlun Hafnarfjarðar í ferðamálum.pdf | 1.01 MB | Lokaður til...27.09.2100 | Meginmál | ||
Markaðsáætlun Hafnarfjarðar í ferðamálum - Greinargerð.pdf | 735 kB | Lokaður til...27.09.2100 | Greinargerð |
Athugsemd: Verkefnið er lokað til 27.09.2100