is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1387

Titill: 
  • Heimahlynning á Íslandi : skilar hún þjóðhagslegum sparnaði og aukinni þjónustu til einstaklinga?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er farið í það að greina kostnað og þjónustu heimahlynningar annarsvegar og sjúkrahúsa hins vegar. Til gangur þessa samanburðar er að vonast eftir því að sjá þjóðhagslegan sparnað í framtíðinni án þess að skerða þjónustu. Skoðaður er kostnaður og þjónusta hjá Heimahlynningu á Akureyri, hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Landsspítala Háskólasjúkrahúsi. Fyrst er aðferðafræði sem tengist kostnaði og þjónustu skoðuð. Því næst er fjallað um starfsemi heimahlynningar, krabbamein og sjúkrahúsin. Skygnst er aðeins inn í framtíðina þar sem meðal annars kemur fram að aukning á krabbameinssjúklingum á eftir að vaxa úr 8000 í 20000 til ársins 2020.
    Skoðuð er bandarísk könnun, en niðurstöður hennar sýna að heimahlynning er ódýrari kostur og einnig að þeir sem velja heimahlynningu lifa að meðaltali 35 dögum lengur en þeir sem dvelja á sjúkrahúsum.
    Borin er saman þjónusta heimahlynningar og sjúkrahúsanna en þar er um að ræða mismunandi þjónustu og er ekki hægt að segja að önnur sé verri heldur en hin.
    Útreikningar á kostnaði sýna að kostnaður heimahlynningar er aðeins einn þriðji af kostnaði sjúkrahúsanna. Því er hægt að segja að þarna sé hægt að ná fram þjóðhagslegum sparnaði án þess að skerða þjónustu.
    Lykilorð:
     Krabbamein
     Heimahlynning
     Sjúkrahúsin
     Þjónusta
     Kostnaður

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1387


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
heima.pdf762.59 kBOpinnHeimahlynning á Íslandi - heildPDFSkoða/Opna