is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13932

Titill: 
  • Titill er á ensku Model Investigations of a Juvenile Fish Bypass System at Urriðafoss HEP
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Aðrennslisskilyrði í inntakslóni virkjunar og rennslisskilyrði í seiðafleytu voru rannsökuð með tvennskonar líkönum, annars vegar þrívíðu tölulegu líkani og hinsvegar straumfræðilegu líkani. Inntakslónið og seiðafleytan eru hluti af fyrirhugaðri Urriðafossvirkjun í Neðri Þjórsá. Virkjunin verður staðsett á miðri gönguleið laxfisks, til að lágmarka áhrif hennar á laxastofn árinnar verður seiðafleyta ásamt laxastigum byggð. Aðrennslisskilyrði í inntakslóni og rennslisskilyrði innan seiðafleytunnar voru rannsökuð til að tryggja örugga og skjóta ferð seiða í gegnum áhrifasvæði virkjunarinnar. Þrjú rekstrartilfelli voru rannsökuð fyrir aðrennslisskilyrðin og fjögur tilfelli með mismiklu rennsli innan seiðafleytunnar. Tölulegu líkönin voru byggð upp með hugbúnaðinum ANSYS CFX þar sem notað var líkan fyrir rennsli við frjálst yfirborð með hefðbundnu k-e iðustreymislíkani.
    Niðurstöður tölulega líkansins voru bornar saman viðmælingar úr straumfræðilegu líkani, þar á meðal hraðasnið úr Acoustic Doppler Velocimeter (ADV), rennslihegðun úr agnaprófi ofl. Á heildina litið er hönnun seiðafleytunnar og aðrennslisskilyrði líkleg til að laða seiðin að seiðafleytunni og skila seiðunum með skjótum og öruggum hætti í gegnum kerfið. Ágætt samræmi er á milli niðurstaða tölulegs líkans og straumfræðilegs líkans næst inntaki virkjunar og seiðafleytu en lengra frá mannvirkjunum var samanburður á niðurstöðum ekki eins góður vegna lítilsháttar ósamræmis í landslagi milli líkana.

Styrktaraðili: 
  • Verkefnið var styrkt af Landsvirkjun
Samþykkt: 
  • 4.2.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13932


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Agust_Gudmundsson_Model_Investigations_SFO.pdf8.01 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna