is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1396

Titill: 
  • Nýliðinn : móttaka og þjálfun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Móttaka nýs starfsmanns á vinnustað er vandasamt verk. Miklu máli skiptir
    að vel sé vandað til verksins. Við ráðningu nýliða er mikilvægt að byggja á
    markvissri starfsgreiningu og starfslýsingu þar sem settar eru fram kröfur til
    viðkomandi starfsmanns.
    Nýliðafræðsla er jafn mikilvæg í stórum sem smáum fyrirtækjum, þó svo að
    í raunveruleikanum gefi stærri fyrirtæki þessum málum meiri gaum.
    Markmið nýliðafræðslu er að miðla upplýsingum um fyrirtækjamenningu,
    starf og samskipti á vinnustað. Áður en nýliðaþjálfun hefst er nauðsynlegt
    að gera þarfagreiningu. Skilgreina þarf áhrif þjálfunar.
    Til að öðlast samkeppnisforskot á markaði og aðlaga sig breyttu umhverfi er
    mikilvægt að fyrirtæki hafi yfir hæfu starfsfólki að ráða, með viðeigandi
    þekkingu, færni og viðhorf. Vel þjálfaður starfsmaður laðar að sér
    viðskiptavini og eykur tryggð þeirra.
    Í ritgerð þessari eru greindar þær aðferðir sem Icelandair notar við að taka á
    móti nýju starfsfólki og þjálfa það. Markmiðið er að bera aðferðirnar sem
    fyrirtækið notar saman við fræðin sem kennd eru í mannauðsstjórnun.
    Leitast er við að svara hvort fyrirtækið sé á réttri leið eða hvort gera megi
    betur?
    Til að skoða þetta var sendur spurningalisti til starfsfólks Icelandair þar sem
    leitað var svara við spurningum sem snúa að móttöku og þjálfun nýliða.
    Úrtakshópurinn samanstóð af 56 einstaklingum sem valdir voru með
    slembiúrtaki. Könnunin var send með rafrænum hætti til starfsfólksins og
    svarhlutfallið var 32%.
    Icelandair vinnur markvisst eftir þjálfunaráætlun sem tekur á flestum þáttum
    er snúa að þeim störfum sem þar eru unnin. Könnunin leiddi í ljós að 88%
    svarenda voru ánægðir með móttöku á vinnustað en aðeins 66% fannst
    nægilega vel staðið að endurþjálfun.
    Lykilorð: Starfsmat, móttaka nýliða, þjálfunaraferðir, starfsþjálfun, mat á
    árangri.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1396


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nýliðinn_e.pdf139.74 kBOpinnNýliðinn - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Nýliðinn_h.pdf124.3 kBOpinnNýliðinn - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Nýliðinn_heild.pdf66.73 MBTakmarkaðurNýliðinn - heildPDF
Nýliðinn_u.pdf96.91 kBOpinnNýliðinn - útdrátturPDFSkoða/Opna