is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13970

Titill: 
  • Hesteyri. Ferðaþjónusta á Hesteyri stefna og skipulag
  • Titill er á ensku Tourism at Hesteyri. Policy and structure
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er skoðað hvernig ferðamálum er háttað á Hesteyri, en Hesteyri er lítið þorp á Vestfjörðum. Hesteyri sem er í Hornstrandafriðlandinu er nú vinsæll ferðamannastaður á sumrin. Þar eru níu hús og í nokkrum þeirra er sumarábúð en til Hesteyrar sækja ferðmenn í dagsferðir og einnig lengri ferðir undir leiðsögn. Markmiðið rannsóknar var að skoða hvernig uppbygging hefur átt sér stað á Hesteyri og hvort einhverri grunnstefnu hafi verið fylgt með tilliti til ferðamála á svæðinu og hvort grundvöllur sé fyrir ferðaþjónustu til framtíðar litið án breytinga. Eftir aðferðum eigindlegra rannsókna voru sendir spurningalistar til húseigenda, ferðaþjónustuaðila og landvarðar og almennt rætt við þátttakendur við vinnslu rannsóknar.
    Rannsóknin leiddi það í ljós að engin sérstök stefna er í ferðamálum á Hesteyri og óljóst er með framtíð hennar. Engin sérstök gögn voru til um fyrirhuguð ferðamál á Hesteyri og ekkert skipulagt samstarf virtist vera um framtíð svæðisins þó að nokkur félög séu starfrækt með það að leiðarljósi að fara yfir ýmis málefni í Hornstrandafriðlandinu. Af viðmælendum að dæma þá er áhugi á að marka stefnu um ferðamál á Hesteyri og töldu viðmælendur það afar mikilvægt að það yrði gert í náinni framtíð Að mínu mati er óásættanlegt að það sé stunduð ferðaþjónustu á friðlandi sem fylgir engri stefnu og getur þar af leiðandi haft neikvæð áhrif á svæðið. Það er því skrítið að fjöldi ferðamanna inn á svæðið stjórnist aðeins af ferðaþjónustuaðilum en ekki af þeim sem bera ábyrgð á svæðinu í heild sinni.

  • Útdráttur er á ensku

    In this essay the tourism structure at Hesteyri in the West fjords of Iceland is analyzed. Hesteyri is in Hornstrandir area which is partly reserved land. It is now a popular tourist destination in the summertime. There are nine houses and in some of them people live over the summertime. The tourism in Hesteyri is mostly based on daytrips but also longer trips with guides. The goal of the research was to look into how the structure has been in Hesteyri over the years, and how the outlook of tourism in the area looks without any changes. During the research, home owners, tourism service stakeholders and the ranger were interviewed using qualitative researches methods.
    The findings from the research were that there is no specific structure followed in tourism and the future is unsure. No specific data was available about tourism planning on Hesteyri and no organized cooperation exists about the future of the region, but there are some groups operating individually working on going over the issues of the Hornstrandir reserve land. The taking from the interviews gave the idea that there is an interest to create a policy for the area and they said it was very important that it would be done in the nearest future so the area will be able to handle the tourists without damaging the untouched land and not causing risk for homeowners and tourism companies. From my point of view it is totally unacceptable that there is an active tourism going on in reserve land without specific policies and that type of behavior can have negative effect on the area. Therefore it is highly remarkable that the number of tourists admitted into the area is only controlled by the tourism stakeholders, and not by those who are responsible for the whole area.

Samþykkt: 
  • 7.2.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13970


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hesteyri BS ritgerð febrúar 2013.pdf788.24 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna