is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1398

Titill: 
  • Sameiningarmöguleikar Siglufjarðar : samanburður á sameiningu Siglufjarðar annars vegar við Ólafsfjörð og hins vegar við önnur átta sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sameiningarumræða meðal sveitarfélaga í Eyjafirði hefur verið mikil undanfarin
    ár meðal annars vegna þróunar í samgöngumálum. Með Héðinsfjarðargöngum
    mun Siglufjörður tengjast Eyjafjarðarsvæðinu á öflugan og áhrifaríkan hátt.
    Göngin eru gríðarlegar samgöngubætur og opna Siglfirðingum ýmsa möguleika,
    meðal annars til samstarfs við önnur sveitarfélög á svæðinu. Með samstarfi má
    lækka kostnað og bæta þjónustu svo eitthvað sé nefnt. Þá tóku nýlega gildi
    breytingar á kjördæmaskipan þar sem Siglufjörður færðist í kjördæmi
    Norðurlands eystra. Þessar breytingar eru einnig hvati til samstarfs við önnur
    sveitarfélög á svæðinu. Samstarf er hins vegar ekki eini möguleikinn í stöðunni,
    sameining sveitarfélaga er ennþá öflugri leið heldur en samstarf til þess að ná
    fram hagræðingu og sparnaði. Nokkrir sameiningarmöguleikar hafa verið nefndir
    og voru sameiningar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar annars vegar og
    Eyjafjarðarsvæðisins hins vegar kannaðar í þessu verkefni.
    Þegar taka á ákvörðun um hvaða leið sé best að fara þarf að taka tilliti til áhrifa
    sameininganna á helstu þætti sveitarfélags og íbúa þess. Rannsókn var gerð á
    áhrifum sameininganna tveggja á þjónustu, stjórnkerfi og rekstur með áherslu á
    hvernig þau áhrif koma til með að birtast Siglfirðingum. Af þessum þáttum liggur
    munurinn á sameiningunum tveimur í fjárhagslegum áhrifum þeirra, önnur áhrif
    eru illmælanleg eða talin það sambærileg að þau vega ekki þungt þegar taka á
    ákvörðun um sameiningu sveitarfélaga.
    Sameiningarnar tvær hafa mest áhrif á útgjöld til sameiginlegs kostnaðar. Til
    skamms tíma er það eini málaflokkurinn sem hægt er að ná verulegum sparnaði í.
    Sameiginlegur kostnaður hjá sameinuðum Eyjafirði yrði 30.373 kr. á íbúa en hjá
    sameinuðu sveitarfélagi Siglufjarðar og Ólafsfirði yrði hann 47.441 kr. á íbúa.
    Niðurstaðan er sú að sameining Eyjafjarðarsvæðisins er fýsilegri kostur.
    Lykilorð: Sameining sveitarfélaga, þjónusta, fjármál, stjórnsýsla,
    stærðarhagkvæmni.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1398


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sameiningarmögul Siglufjarðar_heild.pdf955.91 kBOpinnSam Siglufjarðar - heildPDFSkoða/Opna