Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13995
Verkefni þetta er rannsóknarverkefni og fjallar um forspenntar basalttrefjastangir í steyptum bitum. Gerð er rannsókn á sex forsteyptum bitum sem hafa sama þversnið en tvær mismunandi lengdir. Bitarnir eru styrktir með tveimur forspenntum basalttrefjastöngum. Steypan er látin harðna í 28 daga og bitarnir sex þrýstistyrksprófaðir með fjögurra punkta álagi.
Í verkefninu eru gerð skil á helstu trefjaefnum sem eru notuð í mannvirkjagerð, sem og þau bindiefni sem eru notuð í trefjastangir. Einnig eru kynntir vægi- og skerþols útreikningar fyrir forspennta steypta bita sem eru án skerbendingar. Eftir brot eru niðurstöður prófana bornar saman við útreikninga og fyrri rannsóknir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 3.49 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |