Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1406
Vinnan er stór þáttur í lífi manna og hefur áhrif á heilsu og vellíðan. Rannsóknir
hafa verið gerðar á hinum ýmsu starfsstéttum varðandi vinnu og vinnuumhverfi þeirra en
engar á tannlæknum hér á landi svo vitað sé. Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt.
Annars vegar að rannsaka einkenni vinnu og vinnuumhverfis tannlækna og hins vegar að
taka saman rannsóknir sem gerðar hafa verið á upplifun starfsfólks á vinnu og
vinnuumhverfi. Þátttakendur voru valdir með kerfisbundnu slembiúrtaki af félagaskrá
Tannlæknafélags Íslands. Úrtakið var 100 tannlæknar og svarhlutfall var 35%. Við
rannsóknina var notuð spurningarkönnun sem fellur undir lýsandi megindlega
rannsóknaraðferð. Spurningakönnunin samanstóð af tveimur spurningalistum, Norræna
spurningalistanum um sálfélagslega þætti í vinnunni og spurningalistanum
Vinnuumhverfi. Helstu niðustöður sýndu að flestir þátttakendur virtust sáttir við vinnu
sína og vinnuumhverfið hvetjandi og styðjandi. Þegar líkamsstöður voru skoðaðar kom í
ljós að flestir þátttakenda virtust vinna í álútri stöðu og með snúinn bol. Margir virtust
tengja vinnuaðstöðu, vinnuálag og/eða eigin líkamsbeitingu/venjur við líkamleg
óþægindi. Vegna smæðar úrtaksins er mikilvægt að hafa í huga að niðurstöðurnar gefa
einungis vísbendingar um hvað einkennir vinnu og vinnuumhverfi tannlækna.
Lykilhugtök: starfskröfur, væntingar til hlutverka, samspil vinnu og einkalífs, líkamsstaða
og óþægindi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Einkenni vinnu_heild.pdf | 1.66 MB | Opinn | Einkenni vinnu - heild | Skoða/Opna |