Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14074
Efniviður þessarar ritgerðar er sóttur í tetralógíu sænska rithöfundarins Vilhelms Moberg, Utvandrarna (1949), Invandrarna (1952), Nybyggarna (1956) og Sista brevet till Sverige (1959). Bækurnar fjalla um sænska vesturfara, bláfátækar fjölskyldur, sem yfirgáfu land sitt um miðja 19. öld og sigldu til Ameríku í von um betra líf. Um er að ræða hefðbundna bókmenntarýni á skáldsögunni en sjónum þó einkum beint að tveimur aðalkvenpersónum sögunnar, Kristinu og Ulriku, sem voru afar ólíkar að öllu leyti en verða hvor annarri mikill stuðningur við erfiðar aðstæður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Moberg_BA 27.12.2010.pdf | 590.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |