is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14147

Titill: 
  • Notkun upplýsinga- og samskiptatækni í framhaldsskólum á Íslandi
Útgáfa: 
  • 2004
Útdráttur: 
  • Fjallað er um aðferða við kennslu eigindlega rannsókn á notkun upplýsinga- og samskiptatækni(UST) í framhaldsskólum og sem gerð var á haustönn 2002. Rannsóknin er hluti af þriggja ára
    samvinnuverkefni þriggja háskóla, Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Kennaraháskóla Íslands. Megin markmið verkefnisins er að skoða áhríf upplýsinga- og samskiptatækni á nám og kennslu í íslensku skólakerfi. Hér verður fjallað um þann hluta verkefnisins sem lýtur að notkun upplýsinga- og tölvutækni í framhaldsskólum og áhersla er lögð á notkun nemenda og kennara á UST og viðhorf þeirra til notkunarinnar. Rafræn spurningalistakönnun var lögð fyrir nemendur og kennara í 15 framhaldsskólum. Niðurstöður rannsóknarinnar er að notkun Netsins er almenn meðal bæði nemenda og kennara og viðhorf þeirra til UST er jákvæð. Þó að notkun á Netinu og
    tölvupósti sé almenn og geti nýst í námi og kennslu þá eru nýjungar sem falla undir UST ekki mikið nýttar, s.s. rafrænar æfingar og próf, umræður á Netinu og vefsíður. Kennara eru ekki
    sannfærðir um að notkun á UST leiði til betri árangurs og nemendur eru ekki sannfærðir um að það hjálpi þeim í námi. Hegðun og viðhorf kennara og nemenda í þessari rannsókn gefa einnig til kynna að notkun UST hafi ekki valdið miklum breytingum í kennslu. Ný tækni hefur breytt og kannski einfaldað hagnýt atriði varðandi undirbúning kennslu og vinnu nemenda, en ekki leitt til afgerandi nýrra.

Birtist í: 
  • Tímarit um menntarannsóknir, 2004; 1: s. 229-238
ISSN: 
  • 1670-5548
Samþykkt: 
  • 12.3.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14147


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
18_asrun_michael1.pdf557.48 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna