Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14149
Í þessari grein er fjallað um helstu niðurstöður könnunar er fram fór við Háskólann í Reykjavík sumarið 2003 þar sem kannað var hvaða þættir hefðu áhrif á val kvenna á nám í tölvunarfræði.Megin niðurstöður könnunarinnar eru að konur þekki ekki nægjanlega vel til tölvunarfræði, þekki ekki vel hvað fagið felur í sér og hvaða möguleika það skapar. Einnig hafa konur samkvæmt þessari könnun minni reynslu en karlar af tölvum og tölvunarfræði áður en þær koma í skólann. Niðurstöður gefa einnig til kynna að aðgengi kynjanna að tölvum sé mismunandi þar sem karlar fá aðgang að tölvum mun fyrr, bæði heima og í skóla
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
14_asrun_kolbrun_hrafn1.pdf | 611.87 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |