is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1415

Titill: 
  • Heimahjúkrun barna á Akureyri : þarfir foreldra sem nýta sér heimahjúkrun barna á Akureyri
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að fá upplýsingar og meta þarfir þeirra foreldra sem hafa nýtt sér
    heimahjúkrun barna á Akureyri frá upphafi starfseminnar til dagsins í dag. Fyrri rannsóknir hafa
    beinst að foreldrum langveikra barna en hópurinn sem var rannsakaður nú er fjölbreyttari og
    nýting þeirra á heimahjúkrun er allt frá nokkrum heimsóknum hjúkrunarfræðings heimahjúkrunar
    til langtíma þjónustu.
    Notast var við NPQ – Home mælitækið sem hannað var af Guðrúnu Kristjánsdóttur og forprófað
    árið 1999. Úrtak rannsóknarinnar voru foreldrar barna sem fá eða hafa fengið heimahjúkrun
    síðastliðin tvö ár. Sendir voru spurningarlistar til 15 foreldra og fengust svör við þeim öllum. Af
    þessum 15 foreldrum voru fjórir sem nýttu sér þjónustuna meðan á rannsókninni stóð.
    Samkvæmt heimildum og fyrri rannsóknum bendir margt til þess að það að eiga langveikt barn í
    heimahúsi hafi bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar. Jákvæðu hliðarnar eru þær að minni röskun
    verður á fjölskyldulífi jafnframt að foreldrum finnist þeir hafa meira til málanna að leggja.
    Neikvæðu hliðarnar eru þær að meiri kvíði og streita er til staðar ásamt auknu álagi.
    Helstu niðurstöður þessarar rannóknar voru að foreldrar meta mikilvægi upplýsinga mikils og að
    traust myndist á milli heilbrigðisstarfsmanns og fjölskyldu. Foreldrar meta minna mikilvægi þess
    að geta sinnt líkamlegum og mannlegum grunnþörfum og að hafa aðgang að félagslegum
    stuðningi og leiðsögn. Rannsakendur draga þá ályktun að foreldrar þessa hóps séu ekki
    frábrugðnir öðrum foreldrum, þ.e. því betri upplýsingar og stuðning sem þeir fá því meiri
    öryggiskennd upplifa þeir ásamt því að foreldrar setja þarfir barna sinna ávallt í forgang.
    Lykilhugtök: Heimahjúkrun barna, þarfir foreldra, mæður, börn, upplýsingar, stuðningur.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1415


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heimahjúkrun barna_heild.pdf25.99 MBTakmarkaðurHeimahjúkrun barna - heildPDF