is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14192

Titill: 
  • Orðræða ungs fólks um sjálfsmyndir, þjóðarvitund og hnattvæðingu
Útgáfa: 
  • 2004
Útdráttur: 
  • Markmið þessa erindis er að greina frá rannsókn á menningarímyndum ungs fólks á Íslandi við árþúsundamót. Kannað var hvernig orðræðan um hið íslenska og hið hnattræna birtist í
    sjálfsmyndum ungs fólks, og hvar unga fólkið staðsetur sig menningarlega nú og til framtíðar. Einnig var kannað hvort skil væru á milli orðræðunnar um þjóðarímyndina annars vegar og eigin
    sjálfsmyndar hins vegar. Alls var talað við 48 ungmenni, á aldrinum 15, 18 og rúmlega tvítuga háskólastúdenta í vísindum, listum og hug- og félagsvísindum, jafnmarga af báðum kynjum.
    Einnig voru tekin viðtöl við tíu nýbúa á sama aldri. Tekin voru hálfopin einstaklingsviðtöl yfirleitt í skólum viðkomandi. Úrvinnslan í þessu erindi er fyrst og fremst eigindleg, orðræðugreining.
    Niðurstöður benda til að orðræða ungs fólks um menningarímyndir breytist töluvert frá grunnskóla til háskóla. Ráðandi orðræða lykilþátttakendanna sem í þessari grein eru háskólanemarnir er að
    þeirra sjálfsmynd tengist bæði þeirra heimabæ og Íslandi, nú og til framtíðar, annaðhvort af því það sé óhjákvæmilegt eða vegna þess að það sé hagkvæmur eða góður valkostur á hnattvæðingartímum.
    Ráðandi orðræða nýbúanna er að það sé útilokað fyrir þá að verða Íslendingar, þeir sveiflast á milli upprunamenningar og íslenskrar menningar, eða hafna báðum og hafa þá óstaðbundna sjálfsmynd. Þó að þjóðarímynd flestra viðmælenda sé sterk, og ekki í andstöðu við aðrar ímyndir, þá höfðar íslensk menning missterkt til þess unga fólks sem rætt var við. Fram koma vísbendingar um hvernig tengja megi betur sjálfsmyndir ungs fólks og íslenska menningu með breyttum áherslum í námskrám og kennsluaðferðum. Niðurstöður eru settar fram með áherslu á orðræðu eða raddir unga fólksins og ræddar með hliðsjón af sambærilegum rannsóknum. Þessi athugun er hluti af rannsókn höfunda um menningarlæsi, menningarímyndir og skapandi starf, sem styrkt hefur verið af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og Rannsóknarráði Ítalíu.

Birtist í: 
  • Tímarit um menntarannsóknir 2004; 1; s. 49-62
ISSN: 
  • 1670-5548
Samþykkt: 
  • 19.3.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14192


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
4_gudny_sergio1.pdf351.46 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna