is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14200

Titill: 
  • Aðgengi ferðamanna að Látrabjargi, með tilliti til áhrifa á villta náttúru
  • Titill er á ensku Improved accessibility to the birdcliff Látrabjarg, Northwest Iceland, in relation to conservation of natural values
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Látrabjarg er eitt mesta fuglabjarg í heimi, en aðgengi náttúruskoðara að því hefur lítið verið sinnt. Í þessari ritgerð eru teknar saman upplýsingar um náttúru svæðisins, menningarminjar, ferðamenn, stefnumörkun og áætlanir um svæðið. Kynntar eru mismunandi leiðir til að bæta þjónustu við ferðamenn og aðgengi þeirra að bjarginu til náttúruskoðunar og útivistar. Fjallað er um mögulega þjónustumiðstöð, gönguleiðir, bátsferðir og jarðgöng sem opnast út í bjargið. Áhrif þess að byggja svæðið upp sem ferðamannasvæði eru rædd með áherslu á jarðgöng umfram aðra möguleika. Tekin er afstaða til réttmætis framkvæmda í villtri náttúru og gerðar eru tillögur um uppbyggingu svæðisins þar sem verndun náttúru, menningar og gæða til útivistar eru höfð að leiðarljósi. Meðal annars eru gerðar tillögur um staðsetningu þjónustumiðstöðvar, gönguleiða um svæðið, merkinga og fjallað um aðgerðir sem þarf að gera til að tryggja verndun villtrar náttúru.

  • Útdráttur er á ensku

    Látrabjarg is one of the world’s largest birdcliffs but no serious effort has been made to improve accessibility for observation. In this dissertation information on the nature
    of the area, cultural remains, tourism, planning and future strategy was gathered. Different possibilities to improve accessibility and service for studying the birds and
    the nature of the cliff are presented. These include a service centre, walking paths, sightseeing by boat, and a tunnel leading tourists onto a balcony in the birdcliff. The environmental effects of developing the area for tourism are analysed with a special emphasis on a tunnel. An ethical opinion of the development of unspoiled nature is put forward and recommendations for improvement are made where the goal is to conserve the natural habitat but at the same time making tourism and outdoor life more easily accessible. These recommendations include a service centre at a certain distance from the bird cliff, marked footpaths within the area to observation posts and the precautions that have to be taken for the protection of nature.

Samþykkt: 
  • 20.3.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14200


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistaraverkefni fyrir prentun.pdf2.83 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna