is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1421

Titill: 
  • Brú yfir boðaföllin : rannsókn á breyttu uppeldishlutverki skóla í nútímasamfélagi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð byggir á rannsókn á uppeldishlutverki skóla og aðdraganda að stofnun þeirra. Í
    því samhengi er farið í skólasöguna og skoðaðar þær miklu breytingar sem orðið hafa hér á
    landi á starfsháttum, fjölskylduböndum og félagsskipan innan samfélagsins. Þá eru kenningar
    í félagsfræði notaðar til stuðnings við að greina þær breytingar sem orðið hafa í samfélaginu
    og þar með skólunum og kröfum sem gerðar eru til þeirra. Litið er til þeirra vandamála sem
    við blasa í skólamálum sem og í samfélaginu.
    Kennarar hafa meira af ungu fólki að segja en flestar aðrar stéttir og því gagnlegt að
    heyra þeirra sjónarmið. Til þess að fá dýpri skilning á starfi þeirra var ákveðið að taka viðtöl
    við þrjá kennara. Þá er sérstaklega skoðað starf kennara í gegnum tíðina og viðhorf þeirra til
    þess sem og til uppeldis og menntamála. Það er ljóst að rödd kennara hefur dofnað með
    árunum. Þurfa þeir að hafa meira til málanna að leggja þegar kemur að vandamálum sem eru
    samfélagsleg.
    Það má segja að samkvæmt Durkheim ríki siðrofsástand þjóðfélaginu, þar sem
    einstaklingar og skólar hafa misst sjónar á sameiginlegum markmiðum. Þá er hættan mest
    þegar miklar og hraðar breytingar verða eins og orðið hafa hér á landi. Einnig er fjallað um
    þau vandamál sem snúa að einstaklings-, sjúkdóms- og markaðsvæðingu og lýst yfir
    áhyggjum þess efnis að skólinn hafi ekki sjáanlegan tilgang fyrir alla nemendur þó svo að
    öðru máli gegni fyrir samfélagið.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1421


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Brú yfir boðaföllin_heild.pdf645.03 kBOpinnBrú yfir boðaföllin - heildPDFSkoða/Opna