Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1424
Eru börn að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi? : könnun á þáttöku barna í íþróttum og tómstundum og mögulegar ástæður fyrir því að þau taka ekki þátt
Þátttakendur í könnuninni voru 133 nemendur í fimmta til sjöunda bekk í einum grunnskóla í 2700 manna bæjarfélagi. Nemendurnir svöruðu spurningalista um ýmsa þætti eins og félagslega þátttöku í skipulögðu félagsstafi, hvernig þeir fara í skóla, hvaða íþróttir og tómstundir þeir stunda og hversu mikið þeir nota tölvur og horfi á sjónvarp. Í ljós kom að ekki var fylgni á milli þyngdar og félagslegrar þátttöku í skipulögðu starfi, þyngri börnin eru að æfa eða stunda íþróttir og tómstundir oftar í viku en þau léttari. Þátttaka barnanna í skipulögðu félagsstarfi, íþróttum og tómstundum, í heildina verður að teljast mjög góð. Niðurstöður sýna að yfirleitt er töluverður munur á árgöngum og á kyni og einnig á kyni í sömu bekkjardeild. Þá kom fram að börnin eru að eyða töluverðum tíma í sjónvarp og tölvur og fer meiri tími í sjónvarpsáhorf en tölvuna.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| (Microsoft Word - ... .pdf | 511KB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
| (Microsoft Word - Vi.pdf | 118KB | Opinn | Fylgigögn | Skoða/Opna |