is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1428

Titill: 
  • Morgunhanar : frumkvöðlaverkefni í nærsamfélagi Vesturbæjar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Morgunhanaverkefnið er frumkvöðlaverkefni. Það felst í að aðstoða nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans í Hagaskóla við að vakna á morgnana og koma sér í skólann á réttum tíma. Gerð var rannsókn á hvort mæting þátttakenda verkefnisins skánaði eða versnaði. Einnig var kannað hvort þátttaka í verkefninu hefði jákvæð eða neikvæð áhrif á samskipti foreldra og barna. Að lokum var skoðað hvort samskipti námsráðgjafa við þátttakendur verkefnisins efldust með þátttökunni.
    Helstu niðurstöður voru að með þátttöku í Morgunhanaverkefninu skánaði skólamæting nemenda. Einungis eitt foreldri sagði að verkefnið hefði haft jákvæð áhrif á samskipti á milli sín og barnsins. Hinir foreldrarnir töldu það ekki hafa haft nein áhrif, þ.e. hvorki jákvæð né neikvæð.
    Ekki kemur beint fram í niðurstöðum hvort samskipti ráðgjafa og þátttakenda hafi eflst en samskipti almennt eru talin auðveld og góð.
    Hægt verður að nota niðurstöður til að undirstrika hversu gott úrræði Morgunhanaverkefnið er inn í nærsamfélagið. Þá verður stuðst við niðurstöður úr rannsókninni til að útbúa kynningar- og fræðsluefni fyrir aðrar þjónustumiðstöðvar í Reykjavík. Er áætlað að kynningar hefjist haust 2007.

Samþykkt: 
  • 27.11.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1428


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MorgunhanarBAhalla07CD.pdf331.33 kBOpinnMeginmál PDFSkoða/Opna
Fylgiskjol.pdf66.96 kBOpinnFylgiskjöl PDFSkoða/Opna