Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1428
Morgunhanaverkefnið er frumkvöðlaverkefni. Það felst í að aðstoða nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans í Hagaskóla við að vakna á morgnana og koma sér í skólann á réttum tíma. Gerð var rannsókn á hvort mæting þátttakenda verkefnisins skánaði eða versnaði. Einnig var kannað hvort þátttaka í verkefninu hefði jákvæð eða neikvæð áhrif á samskipti foreldra og barna. Að lokum var skoðað hvort samskipti námsráðgjafa við þátttakendur verkefnisins efldust með þátttökunni.
Helstu niðurstöður voru að með þátttöku í Morgunhanaverkefninu skánaði skólamæting nemenda. Einungis eitt foreldri sagði að verkefnið hefði haft jákvæð áhrif á samskipti á milli sín og barnsins. Hinir foreldrarnir töldu það ekki hafa haft nein áhrif, þ.e. hvorki jákvæð né neikvæð.
Ekki kemur beint fram í niðurstöðum hvort samskipti ráðgjafa og þátttakenda hafi eflst en samskipti almennt eru talin auðveld og góð.
Hægt verður að nota niðurstöður til að undirstrika hversu gott úrræði Morgunhanaverkefnið er inn í nærsamfélagið. Þá verður stuðst við niðurstöður úr rannsókninni til að útbúa kynningar- og fræðsluefni fyrir aðrar þjónustumiðstöðvar í Reykjavík. Er áætlað að kynningar hefjist haust 2007.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MorgunhanarBAhalla07CD.pdf | 331.33 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Fylgiskjol.pdf | 66.96 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |