Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14328
Eitt af því sem greinir háskólakennara frá kennurum á öðrum skólastigum er vald þeirra yfir námskránni, frelsið til að ráða því hvað skuli kennt, hvað nemendur skuli kljást við og hvernig.
Þetta vald eða frelsi er kennurum þó sjaldan íhugunarefni enda fer yfirleitt lítið fyrir fræðilegri umræðu um námskrárgerð innan háskóla. Þá eiga háskólakennarar í fá hús að venda varðandi aðstoð við námskrárgerð. Frelsi háskólakennara til að taka ákvarðanir um nám og kennslu vekur upp spurningar: Hvernig taka kennara ákvarðanir um nám og kennslu og skipulag námskeiða?
Hvaða þættir hafa helst áhrif á þær ákvarðanir? Í greininni verður gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar á viðhorfum kennara í iðnaðar- og vélaverkfræðiskor innan Háskóla Íslands til námskárákvarðana. Með eigindlegum rannsóknaraðferðum, viðtölum og þátttökuathugunum er leitast við að skoða hvaða leiðir kennarar fara við ákvarðanir um skipulag náms og kennslu og hvað hefur einkum áhrif á þær hugmyndir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
13_gudrun1.pdf | 301.29 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |