Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14368
Í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 hefur nokkuð reynt á reglur um skuldajöfnuð, og þá sérstaklega í tengslum við slitameðferð hinna föllnu banka. Telja verður að íslensk löggjöf um efnið, sem er að langstærstum hluta komin úr dönskum rétti, gefi tilefni til nokkurrar óvissu um framkvæmd skuldajafnaðar. Í þessari ritgerð er í öðrum kafla fjallað almennt um skuldajöfnuð og skilyrði hans rakin. Í þriðja kafla er efnið afmarkað frekar við skuldajöfnuð við gjaldþrotaskipti, og helstu frávik frá hinum almenna skuldajöfnuði skoðuð. Í fjórða kafla er síðan fjallað um áhugavert álitaefni sem rekja má til tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2001/24/EB og fjallað sérstaklega um ágreining, sem þegar að þetta er skrifað, er rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur milli Commerzbank og Kaupþings hf. Í fimmta kafla verða svo helstu niðurstöður dregnar saman.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gunnar Atli Gunnarsson (Recovered).pdf | 274.04 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |