Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1436
Verkefni þetta fjallar um námsmat, námsmatsleiðir og almennt um námsmat í grunnskólum. Megintilgangur minn með þessu verkefni er að vekja athygli á fjölbreyttum leiðum námsmats sem nýtast í einstaklingsmiðuðu námi í grunnskólum. Einnig bendi ég á mikilvægi þess að námsmat nýtist nemendum, foreldrum, forráðamönnum og kennurum til áframhaldandi vinnu og gefi sem gleggsta mynd af stöðu nemenda á hverjum tíma. Mikilvægt er að námsmat sé uppbyggjandi, það sýni þá þætti sem nemandi er sterkur í og hvað hann þarf að bæta. Með breyttum kennsluháttum þar sem einstaklingsmiðun í námi er í forgrunni, þarf að sníða námsmatið að hverjum og einum nemanda líkt og kennsluna.
Fjallað er um hugtökin leiðsagnamat, frammistöðumat og lokamat. Einnig kynnumst við nokkrum námsmatsleiðum sem henta vel í einstaklingsmiðuðu námi og nokkrum birtingarformum námsmats. Nokkur sýnishorn af matseyðublöðum eru í fylgiskjölum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GG_Lokaverkefni.pdf | 228.02 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
GG_fylgiskjal 1.pdf | 62.39 kB | Opinn | Fylgiskjal 1 | Skoða/Opna | |
GG_fylgiskjal 2.pdf | 59.86 kB | Opinn | Fylgiskjal 2 | Skoða/Opna | |
GG_fylgiskjal 3.pdf | 57.89 kB | Opinn | Fylgiskjal 3 | Skoða/Opna | |
GG_fylgiskjal 4.pdf | 36.15 kB | Opinn | Fylgiskjal 4 | Skoða/Opna | |
GG_fylgiskjal 5.pdf | 39.69 kB | Opinn | Fylgiskjal 5 | Skoða/Opna | |
GG_1 og 2 s.pdf | 58.07 kB | Opinn | Fyrstu síður | Skoða/Opna |