is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14436

Titill: 
  • Er "menningarlæsi" ungs fólks að breytast? : athugun á lestri og tómstundavenjum nemenda í 10. bekk
Útgáfa: 
  • 2006
Útdráttur: 
  • Í rannsókn þessari eru kannaðar lestrar- og tómstundavenjur ungs fólks árið 2005. Markmiðið er að skoða menningarlæsi nemenda í 10. bekk og bera niðurstöðurnar saman við fyrri rannsóknir á sama aldurshópi og við sambærilega athugun á eldra fólki frá 2005. Spurningalisti var lagður fyrir í tveimur skólum í Reykjavík, 107 nemendur alls. Niðurstöðurnar benda til að nemendur lesi minna í bókum 2005 en jafnaldrar þeirra 1993 og 1965 og að notkun þeirra á internetinu og tölvuleikjum í frítíma sínum, sé mun meiri en fólks á þrítugs- og fimmtugsaldri og jafnaldra þeirra áður. Þeim fjölgar á báðum kynjum sem aldrei eða mjög sjaldan lesa tiltekna bókaflokka. Þá
    kom fram vísbending um að þekking ungs fólks á bókmenntum fari minnkandi. Kynjamunurinn í lestri er nokkur, stúlkum í vil, en þó minni en áður; lítill og ekki marktækur í internetnotkun en tölvuleikjaiðkun drengja er marktækt meiri en stúlkna. Vinsælustu bækurnar hafa verið kvikmyndaðar og eftirminnilegar bókapersónur eru yfirleitt karlkyns. Unga fólkið leggur mikið
    upp úr vali, að fólk lesi eða geri það sem það hefur áhuga á og það telur frekar en fullorðnir að áhugi á íslenskri menningu fari þverrandi. Þó að unga kynslóðin lesi minna af bókum en áður og noti tölvurnar mikið þykir vafasamt nú að fullyrða um afleiðingarnar til framtíðar. Mikilvægt er því að rannsaka betur þá gerð af læsi, sem nýju miðlarnir skapa, og að skólinn sé í takt við þær breytingar. Hugtakið menningarlæsi þarf að endurskilgreina eða víkka þannig að það nái til læsis á alla viðkomandi miðla og til þekkingar sem stuðlar að virkni í samfélaginu, bæði heima fyrir og alþjóðlega. Vonast er til að rannsóknin geti nýst menntamálayfirvöldum og kennurum í viðleitni þeirra til að efla læsi og menntun ungs fólks á Íslandi á tímum tæknibreytinga og hnattvæðingar.

Birtist í: 
  • Tímarit um menntarannsóknir 2006; 3: s. 60-81
ISSN: 
  • 1670-5548
Samþykkt: 
  • 15.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14436


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
5_gudny1.pdf589.16 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna