is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14440

Titill: 
  • Meðábyrgð tjónþola í skaðabótarétti með tilliti til aðgæsluskyldu fasteignareigenda þar sem rekin eru veitingahús
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fræðigreinin skaðabótaréttur fjallar um hvenær og að hvaða marki tjón er skaðabótaskylt. Bótahlutverkið er eitt af meginhlutverkum reglna um skaðabætur og í því felst að sá sem verður fyrir tjóni fær fjárhagslega uppreisn. Hafi tjónþoli hins vegar, með háttsemi sinni, átt þátt í að valda tjóni sínu sjálfur geta reglur um meðábyrgð komið í veg fyrir að hann geti krafið tjónvald um bætur að fullu.
    Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvaða þættir koma til skoðunar við mat á meðábyrgð tjónþola í slysum sem verða á veitingahúsum og hversu ríkar aðgæsluskyldur hafa verið lagðar á fasteignareigenda þar sem slík starfsemi er rekin. Sérstaklega verður litið til þess hvaða áhrif það hefur ef tjónþoli er undir áhrifum áfengis þegar slys verða.
    Í byrjun ritgerðarinnar er fjallað um meðábyrgð tjónþola í skaðabótarétti almennt. Farið er yfir hugtakanotkun, rök fyrir reglunni um meðábyrgð, þætti sem hafa áhrif á mat á meðábyrgð og réttaráhrif meðábyrgðar. Í kafla 3.5 er sérstök umfjöllun um meðábyrgð tjónþola þegar tjónþoli er undir áhrifum áfengis.
    Fjórði kafli fjallar um skaðabótaábyrgð fasteignareigenda. Litið er á hvernig kröfur til fasteignareigenda um skyldur til að koma í veg fyrir tjón á eign sinni eru misjafnar eftir eðli starfseminnar sem fer þar fram. Í kafla 4.3 er aðgæsluskylda fasteignareigenda þar sem rekin eru veitingahús skoðuð sérstaklega. Í fimmta kafla eru teknir saman nokkrir dómar þar sem reynt hefur á meðábyrgð tjónþola og aðgæsluskyldur fasteignareigenda. Í niðurstöðukaflanum eru raktar niðurstöður ritgerðarinnar og dregnar ályktanir af dómaframkvæmd.
    Þar sem að mikið er af ólögfestum reglum á þessu réttarsviði verður í þessari ritgerð mikil áhersla lögð á dómaframkvæmd og ályktanir sem af henni er hægt að draga.

Samþykkt: 
  • 15.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14440


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Margret Herdis BA ritgerð Lokaútgáfa pdf.pdf339.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Forsida.pdf106.62 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna