is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14500

Titill: 
  • Sjóflutningar um Norður Íshafið. Umskipunarhöfn á Íslandi
  • Titill er á ensku Shipping across the Arctic Ocean
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að kynna mikilvægi sjóflutninga í milliríkjaviðskiptum og umfang alþjóðlegra sjóflutninga og umskipunarhafna. Einnig verður fjallað um siglingar um Norður Íshafið ásamt þeim möguleika að Ísland gæti þjónað sem umskipunarhöfn fyrir siglingar á Norður Íshafinu. Þar að auki farið yfir helstu skilyrði fyrir því að umskipunarhöfn rísi ásamt umhverfisáhrifum af viðveru hafnarinnar og siglinga almennt. Sjóflutningar hafa aukist mikið á milli ára. Austur Asía hefur tekið við sem þungamiðja í alþjóðaviðskiptum og er útflutningur þaðan mun meiri en frá vestrænum löndum. Þróun á gámaflutningaskipum og flutningskerfum hefur stuðlað að hagkvæmari sjóflutningum en áður. Milliríkjaviðskipti með gámum fer stigvaxandi með hverju ári og er talið að árið 2050 muni sjóflutningar verða tvisvar til fjórum sinnum meiri en þeir eru í dag. Vegna hlýnunar jarðar hefur siglingarleið opnast um Norður Íshafið sem tengir Asíu við Evrópu og Norður Ameríku. Í ritgerðinni kemur fram að óvíst er hvenær fýsilegt er að sigla um hafið en rannsóknir benda til að þær geti orðið hagkvæmar um árið 2030. Þó er aukinn fjöldi skipa nú þegar farinn að sigla um Norður Íshafið, sem gefur þvi augaleið að sumir telja það hagkvæmt. Þegar sjóflutningar um Norður Íshafið teljast hagkvæmir mun leiðin létta á núverandi siglingarleiðum um Súesskurð og Panamaskurð. Skilyrði fyrir því að umskipunarhöfn rísi á Íslandi eru góð. Aukinn áhugi frá Austur Asíu og ný undirritaður fríverslunarsamningur við Kína ýtir undir að slíkt hafnarmannvirki muni verða að veruleika einn daginn.

Samþykkt: 
  • 26.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14500


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Guðbjörg Reynisdottir.pdf1.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna