Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14532
Sjávarútvegur hefur í gegnum tíðina skipt íslenskt efnahagslíf miklu máli. Í þessari ritgerð var einn hluti vinnslu íslenskra sjávarafurða skoðaður, þ.e. vinnsla ferskra fiskflaka til útflutnings með flugi. Gerð var viðskiptaáætlun um stofnun fiskvinnslu á Suðurnesjum og er gert ráð fyrir að fyrirtækið Inguhlein ehf. yrði stofnað í kjölfar áætlunarinnar. Fyrirtækið aflar hráefnis með kaupum á fiskmörkuðum og vinnur einungis fersk ýsu- og þorskflök. Söluafurðir eru seldar beint til umboðssala sem sér um útflutning á afurðunum. Gerð var áætlun til átta ára.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
anton_ellertsson_bs.pdf | 457.13 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |