is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14539

Titill: 
  • Kennaramenntun og skólastarf í ljósi ólíkra viðhorfa til náms
Útgáfa: 
  • Desember 2012
Útdráttur: 
  • Í grein þessari er fjallað um kennaramenntun og skólastarf í ljósi þriggja ólíkra viðhorfa til náms sem höfundur kallar viðtökuviðhorfið, hugsmíðahyggju og aðstæðuviðhorfið. Viðtökuviðhorfið, segir höfundur, hefur verið ríkjandi viðhorf til náms um langan aldur og mótað starfshætti kennara bæði í skólum almennt og í kennaraskólum en jafnframt haldið okkur föngnum í þeirri þröngu sýn að það að læra merki að taka við því sem aðrir hafa hugsað. Bæði hugsmíðahyggju og aðstæðuviðhorfið má skoða sem andóf gegn viðtökuviðhorfinu. Hugsmíðahyggja beinir athyglinni að
    hæfileikum fólks til að hugsa og móta sér hugmyndir. Aðstæðuviðhorfið beinir athyglinni að ytri aðstæðum, hvernig þær móta hugsun okkar og gerðir okkar en líka að þátttökunni, mikilvægi samstarfs og samræðu. Séu þessi tvö viðhorf, hugsmíðahyggja og aðstæðuviðhorfið, lögð saman verður til kraftmikil sýn á nám sem ætti að geta auðveldað okkur að þróa nýja og betri starfshætti bæði í kennaraskólum og skólum almennt.

  • The paper addresses teacher education and school practices in light of three different views on learning: the acquisition view, constructivism and the situative view. The acquisition view, the author contends, has been a dominant view for a long time and shaped teaching practices both in public schools and in teacher
    education programs, and hold us captive with the narrow idea that leaning is a matter of acquiring the thinking of others. Both constructivism and the situative oppose the acquisition view. Constructivism makes us attentive of people´s competence to think and to construct ideas. The situative view points to external situations, how they shape our thinking but also to participation and the importance of cooperation and dialogue. Taken together they provide us with a powerful tool that may enable us to develop new and better practices in teacher education programs and in schools in general.

Birtist í: 
  • Netla
ISSN: 
  • 1670-0244
Samþykkt: 
  • 30.4.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14539


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kennaramenntun.pdf303.78 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna