Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14562
Í greininni er fjallað um rannsókn þar sem fylgst var með störfum þriggja leikskólakennara í þremur leikskólum og rætt við þá um starf þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að öðlast innsýn í hvernig leikskólakennarar styðja við leik barna og að
skoða hugmyndir þeirra um hlutverk sitt og stuðning við börnin í leik. Gögnum var safnað með þátttökuathugunum og viðtölum og stóð gagnasöfnun yfir í 6 mánuði.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að leikskólakennararnir höfðu allir svipaðar hugmyndir um hlutverk sitt í leik barna. Þeir höfðu þó ólíkar skoðanir á því hvort leyfa ætti börnum að leika sér einum í lokuðu rými þar sem enginn fullorðinn er viðstaddur. Þeir voru heldur ekki á einu máli um hvort eðlilegt væri að leikskólakennarinn sinnti öðrum verkefnum á meðan börnin léku sér. Niðurstöðurnar benda einnig til ákveðinnar togstreitu um skipulag leikskólastarfsins og þess hversu mikla áherslu skuli leggja á stuðning við leik. Kennararnir virtust ekki telja sig geta haft mikil áhrif á fastar venjur og menningu leikskólans hvað þetta varðar.
The aim of the study reported in this article was to gain insight into how preschool teachers support children’s play and their ideas about their own roles in
children’s play. Three preschool teachers were observed and interviewed about
their work. The data were collected over a six-month period. The findings illustrate that all three preschool teachers had similar ideas about their roles in
children’s play. However, they disagreed about whether children should be left to
play alone in a closed room without the presence of an adult. They also disagreed on whether preschool teachers should do other work while the children
are playing. The findings also indicate certain dilemmas about the organization in
preschools and how much focus there should be on play versus structured activities. The preschool teachers seemed to feel powerless to change longstanding
traditions and the culture of the preschool in this regard.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Við getum kennt þeim.pdf | 293.16 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |