is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1460

Titill: 
  • „Þetta er svona einhvern veginn auka“ : tölvutækni sem verkfæri í skólastarfi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er rannsóknarverkefni til fullnaðar meistaraprófs í menntunar- og uppeldisfræði við Kennaraháskóla Íslands með áherslu á tölvu- og upplýsingatækni. Vægi ritgerðarinnar er 20 einingar. Ritgerðin fjallar um rannsókn á því hvernig markviss en tímabundinn stuðningur við kennara skilar sér inn í skólastarf með nemendum, en við stuðninginn er athyglinni beint að notkun UST. Rannsóknin fór fram á haustönn 2005. Niðurstöður rannsóknarinnar benda ótvírætt til þess að á meðan stuðningsins naut hafi kennararnir orðið öruggari og áræðnari við að takast á við flókin og margvísleg verkefni. Tölvunotkun nemenda jókst á tímabilinu. Ekki er ljóst að hve miklu leyti þetta hélst eftir að verkefninu lauk en þó er ljóst að færni kennara hafði aukist og þekking þeirra á greininni varð meiri. Í lokakafla er bent á leiðir sem mikilvægt er að hafa í huga þegar styðja á kennara í að auka þátt UST í námi og kennslu.
    Lykilorð: Tæknifærni, vettvangsheimsóknir, samvinna, samráðsfundir, athafnakerfi, ráðgjafakerfi, pararannsóknir, stuðningur, ráðgjöf.

Samþykkt: 
  • 27.2.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1460


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - einhvernveginnauka.pdf1.39 MBOpinnÞetta er svona einhvern veginn auka - tölvutækni sem verkfæri í skólastarfi - heildPDFSkoða/Opna