Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1460
Þessi ritgerð er rannsóknarverkefni til fullnaðar meistaraprófs í menntunar- og uppeldisfræði við Kennaraháskóla Íslands með áherslu á tölvu- og upplýsingatækni. Vægi ritgerðarinnar er 20 einingar. Ritgerðin fjallar um rannsókn á því hvernig markviss en tímabundinn stuðningur við kennara skilar sér inn í skólastarf með nemendum, en við stuðninginn er athyglinni beint að notkun UST. Rannsóknin fór fram á haustönn 2005. Niðurstöður rannsóknarinnar benda ótvírætt til þess að á meðan stuðningsins naut hafi kennararnir orðið öruggari og áræðnari við að takast á við flókin og margvísleg verkefni. Tölvunotkun nemenda jókst á tímabilinu. Ekki er ljóst að hve miklu leyti þetta hélst eftir að verkefninu lauk en þó er ljóst að færni kennara hafði aukist og þekking þeirra á greininni varð meiri. Í lokakafla er bent á leiðir sem mikilvægt er að hafa í huga þegar styðja á kennara í að auka þátt UST í námi og kennslu.
Lykilorð: Tæknifærni, vettvangsheimsóknir, samvinna, samráðsfundir, athafnakerfi, ráðgjafakerfi, pararannsóknir, stuðningur, ráðgjöf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Microsoft Word - einhvernveginnauka.pdf | 1.39 MB | Opinn | Þetta er svona einhvern veginn auka - tölvutækni sem verkfæri í skólastarfi - heild | Skoða/Opna |