is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14660

Titill: 
  • Fjárfestingakostir á tímum gjaldeyrishafta. Hagkvæmustu fjárfestingakostir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er leitast við að skoða hver áhrif gjaldeyrishafta eru á fjárfestingakosti
    fjárfesta og hverjir séu hagkvæmustu fjárfestingakostir á tíma gjaldeyrishafta.
    Gjaldeyrishöft hafa verið órjúfanlegur hluti af sögu sjálfstæðrar myntar á Íslandi vegna
    þess hve smá, sveiflukennd og óstöðug íslenska krónan hefur verið. Núverandi höft voru
    sett á eftir efnahagshrunið 2008. Með tilkomu haftanna snarbreyttist
    fjárfestingarumhverfi fjárfesta. Erlendir fjárfestingarkostir voru þurrkaðir út fyrir
    krónueigendur og takmarkaðir innlendir fjárfestingarkostir einungis í boði.
    Skuldabréfamarkaðurinn, og þá fyrst og fremst, ríkisskuldabréf hafa verið í sérflokki frá
    hruni og veitt betri ávöxtun en hlutabréf. Nú er taflið hins vegar að snúast við og
    hlutabréf hafa gefið góða ávöxtun síðustu misseri og betri en skuldabréfin. Líklegt er að
    sú þróun haldi áfram á næstunni samfara frekari skráningu félaga á markað og því
    álitlegur fjárfestingakostur að fjárfesta í hlutabréfum og í nýskráningum félaga. Hætta
    er hins vegar að bólumyndun eigi sér stað. Ekki eru augljós merki um bólumyndun að
    svo stöddu en höftin bjaga verðmyndun og gera hana öðruvísi en ella meðal annars
    vegna krónueignar í eigu erlendra aðila sem leita mikið inn á skuldabréfamarkaðinn.
    Fasteignamarkaðurinn er álitlegur kostur við núverandi umhverfi og talsvert líf virðist
    vera að færast á markaðinn. Líklegt má teljast að fasteignaverð eigi eftir að hækka á
    næstunni vegna lítilla nýbygginga og lítils framboðs af réttu húsnæði.
    Fjárfestingatækifærin eru því til staðar á Íslandi þrátt fyrir gjaldeyrishöft.

Samþykkt: 
  • 2.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14660


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Davíð Berg_ BS.pdf791.82 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna